Opið hús í klúbbnum
Er ekki kominn tími á að prófa að kasta nokkrum pílum?
Lánspílur á staðnum
Verið velkominn að mæta og prófa pílukast frítt alla þessa viku milli klukkan 14.00 og 18.00
Opið hús í klúbbnum
Er ekki kominn tími á að prófa að kasta nokkrum pílum?
Lánspílur á staðnum
Verið velkominn að mæta og prófa pílukast frítt alla þessa viku milli klukkan 14.00 og 18.00
Íslandsmót U18 fyrir árið 2020 var haldið laugardaginn 13. febrúar, fresta þurfti mótinu í fyrra vegna Covid og því frábært að byrja árið með því að halda mót fyrir krakkana. Það bæði vekur athygli fyrir framtíðar spilara og gefur þeim sem biðu spenntir í fyrra tækifæri til þess að koma árinu vel af stað.
Stúlkurnar voru þrjár að þessu sinni sem má segja frábært því aðeins einu sinni áður hefur náðst að halda Íslandsmót stúlkna.
Andrea Margrét Davíðsdóttir
Regína Sól Pétursdóttir
Aþena Emma Guðmundsdóttir
Allar þrjár eru ný byrjaðar í pílukasti og enduðu þó nokkrir leikir í miðjunni, þegar leikur hefur ekki klárast í 45 pílum fara báðir keppendur með eina pílu í miðjunna og sá sem er nær sigrar þann legg.
Stúlkurnar spiluðu allar saman í riðli, sú sem var efst í riðli fór sjálfkrafa í úrslita leikinn, og þær sem lentu í öðru og þriðja sæti kepptu sín á milli um að komast í úrslit.
Andrea Margrét sigrar báða sína leiki í riðlinum og var því í efsta sæti og fór beint í úrslit, Regína Sól og Aþena Emma kepptu um að komast í úrslit og sigraði Regína Sól þann leik 3-0, Aþena átti mjög góð tækifæri í öllum leggjunum, og því hefði leikurinn geta farið á báða vegu.
Úrslitaleiknum var því á milli Andreu og Regínu, Andrea klárar fyrsta legg, og síðan tók Regína næstu tvo. Andrea svarar tilbaka og nær að klára síðustu tvo leikinna og stóð því uppi sem Íslandsmeistari stúlkna 2020.
Virkilega gaman að sjá áhugan hjá stúlkunum og það verður spennandi að sjá hver verður Íslandsmeistari 2021 í maí.
Við óskum Andreau innilega til hamingju með sigurinn og hlökkum til að fylgjast með henni ásamt fleiri stúlkum byrja að æfa pílukast að krafti.
Íslandsmót U18 fyrir árið 2020 var haldið laugardaginn 13. febrúar, fresta þurfti mótinu í fyrra vegna Covid og því frábært að byrja árið með því að halda mót fyrir krakkana. Það bæði vekur athugli fyrir framtíðar spilara og gefur þeim sem biðu spenntir í fyrra tækifæri til þess að koma árinu vel af stað.
Drengja keppnin var góð og mikið var um hörku spilamennsku,
Alexander og Magnús gerðu sitt hvort 180
Tómas Breki var með hæsta útskotið 111
Alexander var með fæstar pílur dagsins, hann gerði tvisvar sinnu 17 pílu legg, fyrst í undan úrslitum á móti Tómasi Breka og síðan í úrslitaleiknum á móti Alex Mána.
Úrslita viðureignin var á milli Alex Mána ríkjandi íslandsmeistara frá 2019 og Alexander Veigars, spilað var best af 9 og þurfti því 5 leggi til þess að sigra.
Alexander sigraði 5 – 3
Tómas Breki og Tómas Orri kepptu um 3. sætið, og sigraði Tómas Breki
Nánar um mótið :
Keppendur að þessu sinni voru 8 drengir ( í stafrófsröð), og 3 stúlkur (sér póstur um þær)
Alex Máni Pétursson
Alexander Veigar Þorvaldsson
Ásþór Ingi Gestsson
Magnús Engill Valgeirsson
Tómas Breki Bjarnason
Tómas Orri Agnarsson
Ottó Helgason
Sören Cole
Drengirnir spiluðu 4 í riðli og fóru 4 upp úr hverjum riðli, tveimur var raðað eftir styrkleika í sitt hvorn riðilinn. Spilað var best af 3 í riðli
Riðill 1 og úrslit hans:
Leikmaður 1 | Unnir leggir | Unnir leggir | Leikmaður 2 |
---|---|---|---|
Alex Máni Pétursson |
2
|
0
|
Ottó Helgason |
Ásþór Ingi Gestsson |
0
|
2
|
Magnús Engill Valgeirsson |
Alex Máni Pétursson |
2
|
1
|
Magnús Engill Valgeirsson |
Ottó Helgason |
1
|
2
|
Ásþór Ingi Gestsson |
Alex Máni Pétursson |
2
|
0
|
Ásþór Ingi Gestsson |
Magnús Engill Valgeirsson |
0
|
2
|
Ottó Helgason |
Riðill 2 og úrslit hans:
Leikmaður 1 | Unnir leggir | Unnir leggir | Leikmaður 2 |
---|---|---|---|
Alexander Veigar Þorvaldsson |
2
|
0
|
Sören Cole |
Tómas Orri Agnarsson |
0
|
2
|
Tómas Breki Bjarnason |
Alexander Veigar Þorvaldsson |
2
|
0
|
Tómas Breki Bjarnason |
Sören Coles |
1
|
2
|
Tómas Orri Agnarsson |
Alexander Veigar Þorvaldsson |
2
|
0
|
Tómas Orri Agnarsson |
Tómas Breki Bjarnason |
2
|
0
|
Sören Cole |
Útsláttur drengja ( Dartconnect ):
Hér má skoða tölfræði úrslitaleiksins : Úslitaleikur u18 2020
Tómas Breki 3. sæti, Alexander Veigar Íslandsmeistari, Alex Máni 2. sæti
Við erum stöðugt að vinna að því að bæta við uppbyggingu á þjónustu og efni fyrir pílukast á Íslandi.
Núna erum við að safna saman fullt af skemmtilegum æfingum
Þær má finna undur flipanum fróðleikur – æfingar
Góða skemmtun
Hægt er að panta báðar tegundir af spjöldum núna á síðunni, því miður var 2 daga seinkunn á skipinu en þau koma til okkar í fyrramálið (fimmtudag) og við myndum póstleggja eins fljótt og auðið er
Við þökkum þvolinmæðina
Við erum gríðarlega spennt yfir nýja salnum hjá KEX-hostel í miðbæ Reykjavíkur.
Þar er búið að koma fyrir 8 spjöldum, og eru þeir með mót fyrir fullorðna annan hvern fimmtudag í umsjón Palla aka „Röddin“ – Frábærir vinningar í hvert skipti. (næsta skipti er á morgun)
Hér má sjá viðburðinn fyrir það á Facebook
Við ætlum að skella í nokkra viðburði með þeim, og við byrjum á opnu húsi fyrir börn og ungmenni núna á sunnudaginn – 1. mars
Endilega kíkið við, og sjáið þennan frábæra sal.
Pílukast tók stórt skref á Íslandi um síðustu helgi þegar við vorum partur af Reykjavík International Games (RIG). 48 karlar og 8 konur kepptu og urðu úrslit svo hljómandi:
Sigurvegari karla: Páll Árni Pétursson (PG)
2. sæti: Friðrik Diego (PFR)
3-4. sæti: Kristján Þorsteinsson (PFR) og Sigurgeir Guðmundsson (PA)
Sigurvegari kvenna Ingibjörg Magnúsdóttir (PFR)
2. sæti: María Steinunn Johannesdóttir (PFR)
3-4. sæti: Arna Rut Gunnlaugsdóttir og Petrea Kr. Friðriksdóttir
Ég vill persónulega þakka öllum fyrir alveg hrein frábæra helgi, allt var til fyrirmyndar.
Stjórn PFR á gífurlegt hrós skilið og vill ég biðja ykkur að þakka þeim næst þegar þið sjáið þau, gefið þeim High Five – það er svo sannarlega ekki sjálfsagt að vera með svona öflugt fólk í sjálfboðastarfi.
Arna, Peta, Þorgeir, Jónas, Björgvin TAKK, svo þakka ég líka Matta hjá Live darts Iceland fyrir allan stuðning í við Dartconnect og fyrir að treysta okkur fyrir búnaðnum sínum.
Allir sem tóku myndir á RIG Pílukast, endilega sendið þær á mig. Það er alltaf gaman að safna sögunni saman.
Núna um helgina er helgi númmer tvö á þessu magnaða móti, fullt af íþróttagreinum hafa keppt í dag og eru að keppa alla helgina.
Öll dagskráinn er á www.rig.is
Um helgina er FUN park þar sem við munum kynna pílukast upp í laugardalshöll, báða daga frá 11.30-15
Á sunnudagskvöldinu er partý frá 19 – 21, þar verða þeir einstaklingar heiðraðir sem sigruðu í sinni keppnisgrein. Smáréttarhlaðborð verður.
Við verðum auðvitað á staðnum og það væri frábært ef að fleiri úr píluheiminum sjá sig færa að mæta.
Hægt er að kaupa miða á tix.is (lokar sólahringi fyrir) og kostar kr. 3900 – kr. 4900
Hér má lesa allt um partýið: www.rig.is/party
Sjáumst á sunnudaginn
Pílukast keppni karla er kominn af stað. 48 karlar eru að keppa og það er virkilega magnað að sjá að þetta er samblanda af bæði sterkustu körlum landsins, nýliðum og allt þar á milli.
Um leið og ég bið ykkur að athuga hvort að ykkar nafn sé á listanum, þá vill ég brýna fyrir því að við vinnum samkvæmt reglum WDF (World Darts Federation).
32 karlar og 6 konur eru skráð nú þegar, og ennþá hægt að skrá sig á síðunni.
Hér er listinn: https://tv.dartconnect.com/eventplayers/rig20b
Pílukast er að verða stærra og stærra og veit ég að þið eruð sammála mér í því að vernda Íþróttina og fólkið sem hana stundar. En góð vísa er aldrei of oft kveðinn.
Hvort sem keppt er í aðildarfélaginu þínu (sem er með aðild af ÍPS), á vegum ÍPS eða á öðum opnum stórmótum sem falla undir reglur WDF, fylgjum við reglum WADA og hér á landi er það Lyfjaeftirlit Íslands sem sér um eftirlit.
Öll ólögleg efni eru stranglega bönnuð (áfengi er löglegt í pílukasti), og getur hvenær sem er komið einstaklingur frá lyfjaeftirlitinu og tekið einstaklinga í lyfjapróf af handahófi hvort sem að er í keppni eða utan keppnis.
Ekki hika við að hafa samband við mig ef einhverjar spurningar eru
Þessi helgi verður mögnuð og ég hlakka til að sjá ykkur á morgun
Til eru þrjár aðferðir til að velja í lyfjapróf:
Valið/dregið af handahófi
Sérstaklega valið (ekki handahófskennt)
Valin sæti fyrirfram (algengt t.d. í einstaklingsíþróttum)
Lyfjapróf hefst þegar íþróttamaður er boðaður í lyfjaprófið og því lýkur þegar lífsýnið (þvag og/eða blóð) er búið að innsigla. Íþróttamaðurinn er sá eini sem meðhöndlar sýnið í gegnum ferlið, skv. leiðbeiningum lyfjaeftirlitsaðila. Lyfjaeftirlitsaðili sér um að fylla út öll eyðublöð og kemur svo sýninu á þar til gerða rannsóknarstofu til greiningar.
Einungis rannsóknarstofur sérstaklega vottaðar af WADA (World Anti-Doping Agency) hafa leyfi til þess að greina sýni íþróttamanna. Engin slík rannsóknarstofa er hér á landi og því eru sýnin send erlendis. Lyfjaeftirlit Íslands sendir flest sýni sem stofnunin tekur til Karolinska háskólasjúkrahússins í Stokkhólmi. Algengur tími sem tekur að rannsaka sýnin er um 3-4 vikur. Íþróttamenn eru ekki sérstaklega látnir vita ef um neikvæða rannsóknarniðurstöðu er að ræða.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, setti Reykjavíkurleikana í Laugardalshöll í hádeginu í dag. Gústaf Adolf Hjaltason, forseti undirbúningsnefndar leikanna, tók einnig til máls, fór yfir dagskrána sem framundan er og nýjungarnar í ár. Að setningarathöfn lokinni fengu viðstaddir að prófa pílukast og kynna sér klifur og Enduro hjólreiðar sem eru nýjar greinar á leikunum í ár. Einnig var hægt að reyna við heimsmet Júlíans Jóhanns í réttstöðulyftu. Aðrar nýjar greinar í ár eru crossfit, akstursíþróttir og þríþraut.
Nánar um leikanna má finna á www.rig.is og hér: www.facebook.com/reykjavik.international.games/
Nú styttist heldur betur í veisluna
Hér fyrir neðan getið þið skráð ykkur í pílukeppnina sem er partur af stærsta íþróttamóti Íslands
– Reykjavík International Games – , við erum OFF – Venue og er keppninn haldinn upp á Tangarhöfða 2, Pílukastfélag Reykjavíkur
Skráning lokar 11.00 laugardaginn 25. jan 2020, en til þess að allt gangi sem hraðast og best fyrir sig hvet ég ykkur til að skrá ykkur sem fyrst.
Húsið opnar kl 10.00 Byrjað er að keppa 12.00 – Notast verður við tölvur, Dartconnect, til að skrá leikina.
Keppt er í riðlum best af 5, síðan er útsláttur til og með 8 manna á laugardeginum.
Á sunnudeginum verða síðan undanúrslit og úrslit í báðum flokkum, einn leikur í einu í beinni. (Byrjar kl 14.00)
Hér er mikilvægt að fá áhorfendur í sal.
Ég vek athygli á því að EKKERT áfengi verður til sölu á staðnum, en sér svæði verður fyrir þá sem velja að taka með sér nesti. Ekki er leyfinlegt að hafa annað en vatn á keppnissvæði.
Hér má lesa allt um RIG, www.rig.is
Hér má skoða lista yfir skráða, uppfærður einu sinni á dag
https://tv.dartconnect.com/eventplayers/rig20b
Skráning hér https://kastid.is/?page_id=4532
Eða á netfangið kastid@kastid.is
Hlakka til
Við skelltum okkur til Cardiff, Wales, í síðustu viku þar sem Winmau var að halda viðburð til þess að fagna komu Michael van Gerwens, númer eitt í heimi, til Winmau.
Viðburðurinn var haldin á Principality Stadium, líka þekkt sem Millennium Stadium, virkilega skemmtilegt að fá að sjá þann magnaða stað.
Um 50 manns voru á viðburðinum og við litla Ísland með, við erum ennþá í skýjunum með að fá þetta flotta boð.
Á viðburðinum voru líka Bobby George, Mark Webster, Paul Nicholson og fleiri stór nöfn, þar má nefna Vitor Charrua a.k.a. „The Grenade“, sem bæði eru að keppa eða vinna innan pílukasts í heiminum.
Það var að sjálfsögðu skálað ( í LÉTTöl )
MvG heimtaði auðvitað mynd með okkur #celebs #bestbudds
Hér má sjá viðtalið sem tekið var á viðburðinum við MvG
Við erum kominn með takmarkað magn af Michael van Gerwen pílum á lager, hann hannaði fjögur mismunandi tungsten sett og eitt brass sett, verið velkominn í heimsókn að prófa þessar mögnuðu pílur.
Við hlökkum til að geta boðið ykkur upp á mun meira úrval af píluvörum í framtíðinni……
Við munum keppa á opnunarmóti Þórs á morgun laugardag, í kvöld er einnig Luckydraw og vonandi náum við því.
Við verðum allavega á staðnum einhvað í kvöld.
Við verðum með einhvað af pílum með okkur, endilega pikkaðu í okkur og fáðu að prófa og kaupa draumapílusettið eða kláraður jólagjöfina <3
Hér má lesa allt um mótið: http://thorsport.is/frett/?id=13749
Hlökkum til að sjá sem flesta
Dagana 7. til 12. október fór fram Heimsmeistaramót World Darts Federation (WDF), og voru 42 kvennalið og 48 karlalið sem tóku þátt. Heimsmeistaramótið er haldið annaðhvert ár á oddatölu árum.
Landslið Íslands samanstóð af
Hallgrími Egilssyni, Pétri Guðmundssyni, Páll Árna Pétursyni og Vitor Charrua
Diljá Töru Helgadóttur, Guðrúnu Þórðardóttur, Ingibjörgu Magnúsdóttur og Petreu Kr. Friðriksdóttur
Keppt var í einmenning, tvímenning og liðakeppni skipt í karla- og kvennaflokk
Karlarnir náðu einu stigi og 44. sæti á heimslista
Íslenska Kvennalandsliðið tók hástökk og fór heim með 9 stig og 26. sæti á heimslista, í tvímenningi kvenna komust Ingibjörg og Petrea í 16 manna útslátt, og í liðakeppninni sigraði liðið Cataloniu, þetta er að við best vitum fyrsta skipti þar sem kvennaliðið sigrar leik í liðakeppninni.
Ef árin á undan eru skoðuð þá var ekki kvennalandslið árið 2017, árið 2015 tóku 28 kvennalið þátt og íslensku konurnar í 28. sæti með 0 stig, árið 2013 voru 23 lönd sem tóku þátt og þær í 21. sæti með 1 stig.
Annar sigur er líka að sjá hversu mörg kvennalið tóku þátt, og hvað aukninginn er gríðarleg hjá konum innan pílunar.
Hægt er að skoða öll úrslit hér
Til hamingju með þennan gríðarlega flotta árangur