PDC-NB verður haldið á Íslandi þann 5, 6 og 7 október.
Við verðum með mótið upp í Sal Gigtarfélags Íslands að Ármúla 5, 2 hæð.
Dagskrá er svohljóðandi:
EVENT |
Tími |
Mót |
Innskráningar |
ET 1 |
Föstudag 5/10, 16:00 |
Qualification for PDC ET 1 |
14:00 – 15:00 |
ET 2 |
Föstudag 5/10, 19:00 |
Qualification for PDC ET 2 |
14:00 – 15:00 & 17:00 – 18:00 |
PT 9 |
Laugardag 6/10, 11:00 |
PDC Nordic & Baltic
Pro Tour 9 |
09:00 – 10:00 |
ET 3 |
Laugardag 6/10, 16:00 |
Qualification for PDC ET 3 |
09:00 – 10:00 & 14:00 – 15:00 |
PT 10 |
Sunnudag 7/10, 11:00 |
PDC Nordic & Baltic
Pro Tour 8 |
09:00 – 10:00 |
ATH að skráningar á þetta mót verða að berast í síðasta lagi Miðvikudaginn 3 Október, ENGAR undartekningar eru þar á.
Skráningar skulu berast hingað http://pdc-nordic.tv/event-registration/
Ef þetta vefst fyrir ykkur, bjóðum við upp á að við skráum ykkur, en skráning er ekki gild fyrr en búið er að greiða mótsgjöld! – Ingibjörg 770-4642
Mótsgjöld eru :
30 Evrur PDC Pro Tour mót
60 Evrur fyrir PCD ET mót
Hér er heimasíða PDC-NB http://pdc-nordic.tv
Á þessum mótum gilda eftirfarandi reglur, við erum búin að íslenska þær en hér má finna link á upprunalegt skjál : http://pdc-nordic.tv/tournament-rules/
Keppnisreglur
Darts Regulation Authority (DRA)
Allar keppnir sem að eru skipulagðar af PDC Nordic og Baltic hlúta lögum og reglum DRA (Darts Regulation Authority). Með því að skrá þig til keppnis á vegum þeirra, ber þér að hlíða þeim lögum og reglum.
Hægt er að lesa reglubók DRA hér DRA website
Allar skráningar
Öll skráningargjöld skulu vera fullgreidd fyrirfram á síðasta degi skráningar, loka frestur skráninga kemur fram í öllum viðburðum.
Pro Tour Events
Innritun á keppnisstað
- 08:30 Keppnisstaður opnar fyrir keppendur og gesti
- 08:30 -10:00 Innskráning – Allir keppendur skulu skrá sig FYRIR kl 10.00 ella verða þeir ekki dregnir með til keppnis. (Skráningargjald fæst ekki endurgreitt)
- 11:00 Keppni hefst
- 19:00 Keppni lokið
Dregið er til keppnis samdægurs og keppendur sem ekki skrá sig inn fyrir kl 10.00 verða ekki dregnir með.
Gestir eru leyfðir á keppnisstað, en mótstjórn áskilur sér rétt til þess að hafa einungis keppendur á keppnissvæði sé það metið svo að pláss sé ekki næginlegt.
Vinsamlegast athugið að fótboltatreyjur eru ekki leyfðar, né meiga börn undir 11 ára vera á keppnisstað nema með sér leyfi.
Verðlauna fé
Hvor um sig hafa Pro Tour keppnirnar 5000 evrur í verðlaunafé, og er þeim er skipt svona:
- 16 x 50 euro = 800 euro Síðustu 32
- 8 x 125 euro = 1,000 euro Síðustu16
- 4 x 200 euro = 800 euro Síðustu 8
- 2 x 300 euro = 600 euro Síðustu 4
- 1 x 600 euro = 600 euro 2. sæti
- 1 x 1,200 euro = 1,200 euro Sigurvegari
Greiðsla verðlauna fés er með millifærslu
Stigalisti
Upphæð verðlaunafés unnin á Pro Tour keppnum gildir líka sem stigagjöf á stigalista PDCNB. Stigalistin er til 1 árs og efstu 5 á stigalista eftir tímabilið vinna sér eftirfarandi:
- Invitation to World Darts Championship, Free Q-school entry
- Invitation to World Darts Championship, Free Q-school entry
- Free Q-school entry
- Free Q-school entry
- Free Q-school entry
Þegar nýtt tímabil hefst er stigalistinn núllstilltur.
Röðun
8 keppendum er raðað á öllum mótum, keppandi á vinstri hlið dráttar kastar fyrstur að búlli, sigurvegari búlls byrjar alla oddatölu leiki. Röðun keppanda fer eftir stigalista PDCNB ef að tveir eða fleiri eru með sömu stig mun stigagjöf frá nýlegasta móti gilda.
Dæmi:
- Keppni 1: leikmaður 1 sigrar 1200, leikmaður 2 sigrar 600 og leikmaður 3 ekkert
- Keppni 2: leikmaður 3 sigrar 1200, leikmaður 2 sigrar 600 og leikmaður 1 ekkert 3
Allir eru þeir með 1200 stig, en verður raðað svona:
- Leikmaður 3 (hæðst stig á síðasta móti)
- Leikmaður 2 (næst hæðstu stiginn á síðasta móti)
- Leikmaður 1
Þegar nýtt tímabil hefst mun röðun leikmanna fara eftir árinu á undan.
Spilafyrirkomulag
Allir leikir eru spilaðir best af 11
Reglur um PDC Europe Tour Keppnir
Á PDC Europe Tour mótum opnar keppnissvæði um 2 tímum áður en að mót hefst, innskráning er opin frá um 2 tímum fyrir mót og lokar klukkutíma fyrir mót. Drátturinn fer fram samdægurs af mótstjórn, og allir keppendur skulu hafa skráð sig inn á tilsettum tíma til þess að vera dregnir með til keppnis.
Verðlaun
PDC Europe Tour mót gefur sigurvegara þess móts keppnisrétt á Evrópukeppni sem verið var að keppa um, upplýsingar um það eru á skráningarsíðu þeirra keppnis. Athygli er vakin á því að sigurvegarar verða að greiða félagsgjald að upphæð 15 Evrur fyrir allar keppnir sem þeir öðlast keppnisrétt á.
Enginn önnur verðlaun eru á PDC ET keppnum
Röðun
Ekki er raðað á PDC ET keppnir
Spilafyrirkomulag
Allir leikir eru spilaðir best af 11
Dráttur
Umsjón með drætti er í höndum mótstjórnar PDCNB, dráttur fer fram samdægurs og eftir lögum og reglum samkomulags milli PDC og PDCNB
Reglur um klæðnað
Darts Regulation Authority (DRA) lög og reglur gilda á þessum keppnum, Ekki er leyft að klæðast eftirfarandi fatnaði: Gallabuksum, íþróttabuksur, stuttermabolir, stuttbuksur.
Keppendur skulu klæðast buksum, keppnistreyju með kraga, og skó (íþróttaskór eru ekki leyfðir)
Skrifarar
Ekki eru sjálfboðaskrifarar á þessum mótum og því gildir reglan, taparu leik – skrifaru leik. Í fyrstu leikjum skrifar sá sem síðastur er á blaði í hverjum riðli fyrir sig. Keppendur sem að yfirgefa svæðið án þess að skrifa fá sekt eftir viðurlögum DRA.
Á sumum mótum er hægt að borga fyrir skrif, en það er ávallt leikmanns að fylgja því eftir.
Reykingar, og Drykkir
Keppendum er ekki leyft að reykja né drekka annað en vatn á keppnissvæði, sér afmarkað svæði er fyrir drykki og reykingar.