Viðskiptaskilmálar

Viðskiptaskilmálar

Rekstraraðili og seljandi á vefsíðunni kastid.is er Pílukast ehf., kennitala 611122-0980 og VSK númerið er 146810, Álfaskeið 70, 220 Hafnarfirði og er hér eftir nefnt Pílukast ehf. 

Kaupandinn er sá aðili sem er skráður fyrir kaupum. 

Pílukast ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Skilmálarnir geta breyst án fyrirvara. Allar breytingar á skilmálunum eru vistaðar með tímastimpli og gildir viðskiptaskilmálar miðast við dagsetningu þegar kaupandinn keypti vöruna á Pílukast ehf.

Verð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara og Pílukast ehf. áskilur sér rétt til að afgreiða ekki pöntun ef verð vörunnar er rangt skráð á vefverslun.  Öll verð eru gefin upp með virðisaukaskatti. Sendingarkostnaður er ekki innifalinn og reiknast út í samræmi við sendingarmáta sem valin er. 

Greiðslur

Hægt er að greiða í gegnum greiðslusíðu xxx. Allar greiðslukortaupplýsingar eru fluttar til xxx með SSL dulkóðaðri samskiptatækni. Pílukast ehf vistar ekki á neinum tímapunkti í greiðsluferlinu kortaupplýsingar kaupandans.
Einnig má greiða með millifærslu á bankareikning Pílukast ehf.

Skilafrestur

Skilafrestur á vörum er 30 dagar eftir að vara hefur borist til kaupandanda. Ef á að skila vöru þarf hún að vera afhent til sendingaraðila á tímabilinu. (undartekningar um jól, þá er hægt að skila jólagjöfum til 31. Janúar) Varan sem hefur verið endursend þarf að vera í söluhæfu ástandi, og í upprunalegum umbúðum.

Vöruverðið verður endurgreitt með millifærslu. Kaupandi ber allan sendingarkostnað nema um annað sé samið við Pílukast ehf. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Að öðru leyti gildir III. kafli laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000.

Gallaðar vörur

Ef varan er ekki í samræmi við ástandslýsingu eða er ekki nothæf í þeim tilgangi sem hún er ætluð telst hún vera gölluð. Gölluðum vörum má skila til Pílukast ehf. en tilkynna þarf um gallann innan ábyrgðartímans.

Ef varan telst gölluð þarf kaupandi að hafa samband við Pílukast ehf. í gegnum tölvupóst kastid@kastid.is eða með öðrum samskiptamáta skilgreindum á vefsíðu Pílukast ehf. Pílukast ehf. áskilur sér rétt til að gera tilraun til úrbóta svo að varan uppfylli kröfur og eiginleika auglýsta á vefsíðu Pílukast ehf. Pílukast ehf. ákveður einnig hvað skuli gera við gallaða vöru og verður það tilkynnt  kaupandanum með tölvupósti innan 3 virkra daga frá því að tilkynning um gallaða vöru barst til Pílukast ehf.

Gallaðar vörur eru endurgreiddar með millifærslu.

Ábyrgð

Pílukast ehf. veitir tveggja ára neytendaábyrgð til einstaklinga skv. neytendalögum. Ábyrgð til fyrirtækja er eitt ár skv. lögum um lausafjárkaup. Ábyrgðartíminn gildir nema annað sé tekið fram og reiknast frá afhendingardegi. 

Ábyrgð nær hvorki til eðlilegs slits eða notkunar á rekstrarvörum (t.d. rafhlöðum) né annarra vara sem eiga ekki að endast út ábyrgðartíma. Pílukast ehf. undanskilur sig allri ábyrgð af afleiddu tjóni.

Ábyrgðin fellur úr gildi ef kaupandi eða annar aðili á hans vegum opnar vöruna eða ef varan er meðhöndluð með röngum hætti, sem og ef ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum sem fylgja vörunni. Leiðbeiningar teljast nægilegar ef þær eru á ensku, íslensku eða settar fram með táknrænum hætti. Sama gildir ef rétti spennugjafinn eða rétt rafhlaða hefur ekki verið notuð.

Pílukast ehf. áskilur sér rétt til þess að staðfesta bilun áður en viðgerð, endurgreiðsla eða vöruskil eiga sér stað. Galli vörunnar þarf að vera viðurkenndur af framleiðanda. Pílukast ehf. áskilur sér rétt til þess að gera við gallaðar vörur. Ef bilun fæst ekki fram getur hóflegur kostnaður fallið á viðskiptavin.

Afgreiðsluferlið

Eftir að vörukaup hafa verið afgreidd í gegnum vefsvæði Pílukast ehf. tekur afgreiðsluferli vörunnar við. Pílukast ehf. fær tilkynningu um vörukaup og fer í framhaldi af því að taka vöruna til. Kaupandi fær síðan SMS með staðgestingu að varan sé til.
Vörunni er dreift með Íslandspósti, heimkeyrslu eða öðrum viðeigandi hætti. 

Venjulegur afgreiðslutími í heimkeyrslu eru 2-3 dagar, þú færð sms þar sem spurt er hvaða tími hentar þér best að fá vöruna afhenta.

Kaupandinn þarf að tryggja og ber ábyrgð á að uppgefið heimilisfangið í pöntunarferlinu er rétt skráð og að póstkassinn sé vel merktur og aðgengilegur sbr. reglur Íslandspósts.

Skilmálar og nánari upplýsingar um afhendingarferlið hjá Íslandspósti má finna á vefsíðu Íslandspósts.

Sýni umbúðir vörunnar merki um skemmdir eða óeðlilega meðhöndlun skal hafa samband við Pílukast ehf. í þessu tilfelli er æskilegt að viðtakandi taki mynd áður en umbúðirnar eru opnaðar og sendi hana með tilkynningunni.

Sendingarmáti

Pantanir eru afgreiddar í gegnum Íslandspóst, eða heimkeyrslu. Íslandspóstur býður upp á afhendingu vara á eftirfarandi hátt:

  • Sending heim að dyrum
  • Sækja í póstbox
  • Sækja á pósthús

Valmöguleikarnir eru þó mismunandi eftir landsvæðum.

Eignaréttur

Allar seldar vörur eru í eigu Pílukast ehf.  þar til kaupverð er að fullu greitt. Þetta gildir einnig um reikningsviðskipti.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.

Persónuvernd

Kaupandi skal kynna sér vel meðhöndlun persónuupplýsinga hjá Pílukast ehf. Við notkun á vefsvæði kastid.is notum við vafrakökur og skal notandi vefsvæðisins kynna sér vafrakökunotkun og persónuverndarstefnu Pílukast ehf.